Rannsóknarnefnd Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008
skilaði skýrslu sinni 12. apríl 2010. Í nefndinni áttu sæti Páll Hreinsson
hæstaréttardómari, Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, og Sigríður
Benediktsdóttir, kennari við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum.
Vefútgáfu skýrslunnar er ætlað að vera aðalútgáfa skýrslunnar enda birtist þar
efni sem ekki er í hinni prentuðu útgáfu, m.a.
ensk þýðing á hluta skýrslunnar, tölfræðilegt efni og bréfaskipti
nefndarinnar og 12 einstaklinga sem veittur var andmælaréttur um atriði sem fram
koma í skýrslunni. Prentaða útgáfan, sem er í níu bindum, verður til sölu í
bókaverslunum.
Aðdragandi og orsakir falls
íslensku bankanna 2008 og tengdir atburðir
Viðauki I Rannsóknasetur um fjölmiðlun og
boðskipti: Umfjöllun fjölmiðla á Íslandi um banka og
fjármálafyrirtæki 2006–2008
Viðauki II Hulda Þórisdóttir:
Afsprengi aðstæðna
og fjötruð skynsemi: Aðdragandi og orsakir efnahagshrunsins á
Íslandi frá sjónarhóli kenninga og rannsókna í félagslegri sálfræði
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.